Erlent

Framá­maður AfD sektaður fyrir að nota slag­orð nas­ista

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Björn Höcke fer fyrir AfD í sambandsríkinu Þýringalandi.
Björn Höcke fer fyrir AfD í sambandsríkinu Þýringalandi. Getty/Sean Gallup

Björn Höcke, leiðtogi hins öfgafulla þýska stjórnmálaflokks Valkosts fyrir Þýskaland í Þýringalandi, hefur verið dæmdur til að greiða sekt fyrir að hafa notað eitt af slagorðum brúnstakka nasistanna á stuðningsmannafundi.

Dómstóll í Halle í Saxlandi-Anhalt komst að þeirri niðurstöðu að Höcke hafi vísvitandi notað slagorðið: „Allt fyrir Þýskaland,“ á stuðningsmannafundi í maí ársins 2021. Slagorðið er tengt hinum alræmdu brúnstökkum sem var hernaðarvængur Nasistaflokksins áður en hann tók við völdum í Þýskalandi.

Guardian greinir frá því að Höcke hafi áður starfað sem sögukennari og því ólíklegt að hann hafi ekki vitað af tengingu slagorðsins við brúnstakkana. Hann hefur verið dæmdur til að greiða sekt upp á þrettán þúsund evrur sem svara til tæpra tveggja milljóna íslenskra króna. Ákæruvaldið fór fram á sex mánaða skilorðsbundna fangelsisvist en verjendur fóru fram á sýknu.

Ekki í fyrsta sinn

Höcke sakar ákæruvaldið um pólitíska kúgun og hefur sagt að hann hyggist áfrýja dómnum. Í Þýskalandi eru ströng lög varðandi notkun slagorða, áróðurs eða hvers kyns tákna sem tengjast nasistum sem og öðrum öfga- og hryðjuverkasamtökum.

Hinn 52 ára gamli Höcke er einn mest áberandi leiðtogi Valkosts fyrir Þýskalands og jafnframt einn öfgafyllsti fulltrúi þess en hann hefur farið fyrir flokknum í heimaríki sínu frá stofnun flokksins árið 2013. Hann hefur ítrekað komist í kast við lögin. Árið 2018 kallaði hann minnisvarðann um helförina í miðborg Berlínar „minnisvarða um skömm“ og hefur kallað eftir breytingu á viðhorfi Þjóðverja til helfararinnar.

Greint var frá því í gær að dómarar við stjórnsýsludómstól í Münster hefði staðfest flokkun Valkosts fyrir Þýskaland sem mögulegra hættulegra öfgasamtaka. Það þýðir að lögregla hefur rétt til að fylgjast með flokknum með hlerunum og uppljóstrurum.

„Það er tilefni til þess að gruna að minnsta kosti hluti flokksins vilji skipa þýskum borgurum af erlendum bakgrunni í annan flokk,“ skrifuðu dómararnir þegar þeir staðfestu niðurstöðu lægra dómstigs frá 2022.


Tengdar fréttir

Stað­festir flokkun AfD sem öfga­sam­taka

Þýskur dómstóll staðfesti flokkun hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem mögulegra hættulegra öfgasamtaka. Niðurstaðan þýðir að lögregla hefur rétt til þess að fylgjast með flokknum með hlerunum og uppljóstrurum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×